Breyting á heimsóknarreglum Hraunbúða 18. september 2020
18.09.2020Aðeins EINN GESTUR má heimsækja hvern íbúa á dag (helst sá sami næstu 7 daga). Fjölskyldur þurfa sjálfar að koma sér saman um hver það er sem kemur.
- GRÍMUNOTKUN tekin upp að nýju. Gestir komi með sínar eigin grimur
- Gestir þurfa að skrá nafn sitt í gestabók við inngang
- Þvo þarf hendur þegar komið er í hús, spritta og sinna persónulegu hreinlæti í hvívetna
- Heimsóknir skulu fara fram á einkarými íbúa eða utanhúss, halda skal fjarlægð við aðra íbúa en sinn eigin aðstandanda og passa upp á að snertifletir séu sem fæstir. Þetta þýðir m.a að gestir skulu ekki stoppa við í setustofu eða matsal Hraunbúða heldur fara beint inn á herbergi íbúa.
- 2 METRA reglan er í gildi. Þetta gildir bæði hvað varðar íbúann eins og mögulegt er, starfsfólk Hraunbúða og annað heimilisfólk.
- Heimsóknir eru heimilaðar á tímabilinu kl.13-17:30
Áfram gilda einnig eftirfarandi reglur:
Að gestir
Komi EKKI í heimsókn til íbúa í 14 daga frá komu til landsins
Komi EKKI í heimsókn ef minnstu einkenni um kvef, flensulík einkenni, magakveisu, höfuðverk , beinverki eða slappleika eru til staðar